Skip to main content

No jobs have been saved yet.

No jobs have been saved yet.

Growing together, winning together

Vaktstjóri - Víking Brugghús

Akureyri, Iceland Supply Chain Posted on: 17/03/2023 86132
Apply for role

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður sem hefur djúpar rætur og 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af fyrirtækinu þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór með stolti. Við bjóðum upp spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsmanna. Sjálfbærnistefnan okkar er metnaðarfull og stikar leiðina að betra samfélagi og er starfsfólk hvatt til að taka þátt í að fylgja henni eftir, sýna frumkvæði og vinna að sífelldum úrbótum. Ef þú vilt hafa áhrif, hvetjum við þig til að slá til!

 

Við leitum að vaktstjóra fyrir framleiðslu Víking brugghúss

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á að fylgja daglegu skipulagi og framkvæmd framleiðsluáætlunar 
  • Verkefnastýring á vakt
  • Áfylling í samræmi við áfylliplan  
  • Stjórnun framleiðsluvéla, hafa eftirlit með gæðum framleiðslunnar
  • Ábyrgð á því að fylgja verkferlum og tryggja öryggi
  • Breytingar á vélum þegar skipt er á milli hráefna eða umbúða  
  • Þátttaka í reglubundnu viðhaldi á vélum og tækjum
  • Bilanagreiningar / bilanaleit í samvinnu við tæknideild

Hæfniskröfur

  • Iðnmenntun eða sambærileg menntun er æskileg eða að minnsta kosti 3ja ára starfseynsla í sambærilegu starfi við framleiðsluvélar 
  • Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki 
  • Almenn tölvukunnátta 
  • Jákvætt viðhorf og geta til að vinna undir álagi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg 

Unnið er á vöktum

 

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Við viljum fá sem fjölbreyttastar umsóknir frá fólki af öllum kynjum og af ólíkum bakgrunni. Hafðu samband við okkur ef þú ert efins.

Nánari upplýsingar veitir Eggert Sigmundsson esigmundsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningavef CCEP https://is.ccep.jobs/

Umsóknarfrestur er til og með 31.mars 2023

Allir einstaklingar sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvattir til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun

Be the first to know

Sign up to be the first to receive job updates.

Interested inSelect a job category from the list of options. Select a location from the list of options. Finally, click “Add” to create your job alert.