Skip to main content
Search jobs

Sérfræðingur í stafrænni þróun á sölusviði

Lamar Reykjavik, Islandia Komersial : Field Sales 02/10/2025 104809

Coca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að bera ábyrgð stafrænni þróun í sölu og þjónustu fyrirtækisins. Viðkomandi mun bera ábyrgð  innleiðingu og eftirfylgni tæknilausna, aðferða, árangursmælikvarða og þróun úrbótaverkefna til þess að hámarka sölu og bæta upplifun viðskipavina.
Starfið heyrir undir forstöðumann þjónustu og vinnur þétt með öðrum stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins.

 

 

HELSTU VERKEFNI
•    Innleiðing og umsjón með kerfum og tæknilausnum sem styðja við sölu og þjónustu
•    Ábyrgð á framsetningu gagna og lykilmælikvarða til að styða við sölu og þjónustu.
•    Greiningarvinna, þróun á verkferlum og aðferðum til að hámarka sölu og þjónustu
•    Stuðningur, þjálfun og eftirfylgni í notkun tæknilausna
•    Umsjón og þróun á CRM kerfi
•    Breytingastjórnun og forgangsröðun verkefna
•    Faglegur leiðtogi og stuðningur við önnur hlutverk og deildir

ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
•    Háskólapróf í viðskiptafræði, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærileg
•    Greiningarhæfni og reynsla af framsetningu gagna og lykilmælikvarða
•    Reynsla af innleiðingu tæknilausna og umbótaverkefnum
•    Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
•    Góð tæknikunnátta er skilyrði og reynsla af Salesforce er kostur
•    Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
•    Þekking og reynsla af sölu og  þjónustustjórnun er kostur
•    Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Umsóknarfrestur 12. október 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Rúnarsdóttir forstöðumaður þjónustu sunna.runarsdottir@ccep.com
ATH. aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Lamar