Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í innkaupa- og áætlanadeild Coca-Cola á Íslandi

Lamar Reykjavik, Islandia Supply Chain 02/05/2026 109732

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

HELSTU VERKEFNI
•    Bókun á innkaupum og tollafgreiðsla
•    Kostnaðareftirlit
•    Skjölun á innkaupagögnum
•    Samskipti við birgja og flutningsaðila
•    Umsjón með vöruupplýsingum í Microsoft Dynamics 365
•    Dagleg eftirfylgni með komudagsetningum á vörum

ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
•    A.m.k. 1 ára háskólamenntun eða reynsla af sambærilegu starfi
•    Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
•    Nákvæmni og góð skipulagshæfni
•    Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
•    Góð almenn tölvukunnátta, reynsla í Microsoft Dynamics er kostur
•    Góð töluð og rituð íslensku- og enskukunnátta

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 10. maí 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Áslaug Harpa Axelsdóttir aaxelsdottir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Lamar