Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf á sölusviði hjá Coca-Cola á Íslandi

Bewerben Reykjavík, Island Vertrieb (innen und außen) 05/02/2026 107443

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Sala á vörum fyrirtækisins
•    Setja upp og fylgja eftir söluáherslum með viðskiptavinum
•    Öflun nýrra viðskiptavina á veitingamarkaði
•    Þjónusta við viðskiptavini
•    Eftirlit með tækjabúnaði í eigu CCEP

Hæfniskröfur
•    Brennandi áhuga og reynsla af sölustörfum
•    Áhugi og þekking á drykkjarvörum
•    Reynsla af starfi á veitingamarkaði er mikill kostur
•    Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
•    Fagleg framkoma, góð samskiptahæfni og þjónustulund
•    Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
•    Góð almenn tölvukunnátta
•    Íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg

Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.

Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.

Umsóknarfrestur 1. mars 2026

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veita mannauðsráðgjafar okkar í gegnum netfangið hr@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Bewerben