Umsjón með sölusvæði
BewerbenCoca-Cola á Íslandi leitar að drífandi og skipulögðum einstaklingi til þess að hafa umsjón með sölusvæðum á matvörumarkaði.
HELSTU VERKEFNI
• Heimsóknir á sölustaði
• Viðhalda og efla viðskiptatengsl á sölustöðum
• Uppsetning og eftirfylgni á framstillingum og markaðsáherslum á sölustöðum
• Þjálfun og eftirfylgni með starfsfólki í áfyllingu
• Framkvæmd og eftirfylgni á mælikvörðum
• Eftirlit með kælibúnaði, og öðrum tækjum sem eru í eigu CCEP
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun er æskilegt
• Reynsla af sölu og þjónustu
• Góð þekking á vörum og þjónustu CCEP
• Fagleg vinnubrögð og þjónustulund
• Drifkraftur, sveigjanleiki og hæfni til að vinna í teymi
• Mjög góð tölvuþekking og hæfni til að tileinka sér nýjungar
• Góð töluð og rituð íslensku- og enskukunnátta
• Góð þekking á Salesforce og Microsoft Office kostur
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 15. mars 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hallur Geir Heiðarsson hheidarsson@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.