Sérfræðingur í stafrænni þróun á sölusviði
BewerbenCoca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að móta og innleiða gagnadrifna lykilmælikvarða og leiða stafræna þróun í sölu- og þjónustudeild fyrirtækisins. Viðkomandi mun bera ábyrgð innleiðingu og eftirfylgni tæknilausna, aðferða, árangursmælikvarða og þróun úrbótaverkefna til þess að hámarka sölu og bæta upplifun viðskipavina.
Starfið heyrir undir forstöðumann þjónustu og vinnur þétt með öðrum stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins.
HELSTU VERKEFNI
- Innleiðing og umsjón með kerfum og tæknilausnum sem styðja við sölu og þjónustu
- Ábyrgð á skilgreiningu, framsetningu og eftirfylgni gagna og lykilmælikvarða til þess að styðja við sölu og þjónustu
- Greiningarvinna, þróun á verkferlum og aðferðum til að hámarka sölu og þjónustu
- Stuðningur, þjálfun og eftirfylgni í notkun tæknilausna
- Umsjón og þróun á CRM kerfi
- Breytingastjórnun og forgangsröðun verkefna
- Faglegur leiðtogi og stuðningur við önnur hlutverk og deildir
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
- Háskólapróf í viðskiptafræði, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt
- Greiningarhæfni og reynsla af framsetningu gagna og lykilmælikvarða
- Reynsla af innleiðingu tæknilausna og umbótaverkefnum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð tæknikunnátta og færni í Excel er skilyrði og reynsla af Salesforce er kostur
- Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
- Þekking og reynsla af sölu og þjónustustjórnun er kostur
- Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til þess að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 3.maí 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Rúnarsdóttir forstöðumaður þjónustu sunna.runarsdottir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.