Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í viðskiptaþjónustu hjá Coca-Cola á Íslandi

Aplicar Reikiavik, Islandia Comercial: ventas fuera de la oficina 11/02/2026 107716

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Almenn þjónusta við viðskiptavini í gegnum tölvupóst og síma
•    Úrlausn og eftirfylgni fyrirspurna
•    Stofnun viðskiptavina og viðhald viðskiptamannaupplýsinga
•    Móttaka og skráning viðskiptavina og annarra gesta
•    Afgreiðsla sóttra pantana
•    Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur
•    Stúdentspróf er æskilegt
•    Starfsreynsla af þjónustu
•    Góð þekking á Microsoft Office og Dynamics 365 kostur
•    Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar
•    Fagleg framkoma
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Góð töluð og rituð íslenska er skilyrði
•    Góð töluð og rituð enska er kostur
•    Þjónustulund, drifkraftur og sveigjanleiki

Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.

Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.

Umsóknarfrestur 1. mars 2026

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veita mannauðsráðgjafar okkar í gegnum netfangið hr@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Aplicar