Skip to main content
Search jobs

Starf í viðskiptaþjónustu

Postuler Reykjavik, Islande Commercial terrain 08/05/2026 109875

Coca-Cola á Íslandi auglýsir fjölbreytt og skemmtilegt starf í viðskiptaþjónustu.

 

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Almenn þjónusta við viðskiptavini í gegnum síma og tölvupóst
•    Úrlausn og eftirfylgni almennra fyrirspurna
•    Stofnun viðskiptavina og viðhald viðskiptamannaupplýsinga
•    Móttaka og skráning viðskiptavina og annarra gesta
•    Afgreiðsla sóttra pantana
•    Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur
•    Stúdentspróf er æskilegt
•    Starfsreynsla við þjónustu
•    Góð þekking á Microsoft Office
•    Góð almenn tölvuþekking og hæfni til að tileinka sér nýjungar
•    Fagleg framkoma
•    Góð töluð og rituð íslenska er skilyrði
•    Góð töluð og rituð enska er kostur
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Þjónustulund, drifkraftur og sveigjanleiki

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.

Umsóknarfrestur 17. maí 2025

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Erla Sveinsdóttir teymisstjóri viðskiptaþjónustu thsveinsdóttir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Postuler