Skip to main content
Search jobs

Forstöðumaður sölu á veitingamarkaði

Postuler Reykjavik, Islande Commercial terrain 13/08/2026 112190

Forstöðumaður sölu á veitingamarkaði

Coca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum, framsýnum og árangursdrifnum leiðtoga til þess að leiða sölustarf á veitingamarkaði. Viðkomandi mun leiða öflugt söluteymi með skýra framtíðarsýn og hvetjandi forystu að leiðarljósi.

Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra sölusviðs og vinnur þétt með öðrum stjórnendum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Marka og innleiða stefnu fyrir sölustarf á veitingamarkaði

•    Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini

•    Leita leiða til að vaxa á markaði

•    Greining gagna til ákvarðanatöku

•    Ábyrgð á rekstri og áætlanagerð

•    Mannaforráð og dagleg stjórnun

•    Tekur þátt í að móta og framfylgja stefnu fyrirtækisins

•    Faglegur leiðtogi og stuðningur við önnur hlutverk og deildir til árangurs á veitingamarkaði

Menntunar- og hæfniskröfur

•    Haldbær reynsla af sölu og þjónustustörfum

•    Háskólamenntun sem nýtist í starfi

•    Þekking, reynsla, og brennandi áhugi á viðskiptastjórn/ og eða sölustjórn

•    Reynsla og hæfni í samningatækni og samningagerð

•    Greiningarhæfni og reynsla af söluáætlunum og áætlunargerð

•    Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

•    Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

•    Góð tæknikunnátta

•    Þekking og reynsla af þjónustustjórnun er kostur

 

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.

Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.

Umsóknarfrestur 24.ágúst 2026

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnþór Jóhannsson framkvæmdastjóri sölusviðs arnthor.johannsson@ccep.com

Postuler