Viðskiptastjóri á matvörumarkaði
PostulerCoca-Cola á Íslandi leitar metnaðarfullum og söludrifnum einstaklingi í starf viðskiptastjóra á matvörumarkaði. Viðskiptastjóri ber ábyrgð á að halda vel utan um viðskiptatengsl og greina tækifæri fyrir okkar frábæru vörumerki hjá viðskiptavinum okkar. Starfið er fjölbreytt, lifandi og krefst greiningarhæfni og skipulags.
Starfið heyrir undir forstöðumann sölu á matvörumarkaði og vinnur þétt með öðrum stjórnendum og starfsfólki fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Viðhalda og efla viðskiptatengsl
• Fylgja eftir sölu og markaðsáherslum
• Greining gagna
• Samningagerð
• Sala og þjónusta við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
• Brennandi áhugi á sölu og þjónustu
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð greiningarhæfni
• Metnaður, áreiðanleiki, fagleg vinnubrögð og frumkvæði
• Reynsla af sölustarfi/eða viðskiptastjórn er kostur
• Góðir skipulagshæfileikar
• Góð ensku-og íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
• Góð tölvukunnátta og færni til að tileinka sér nýjungar
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Umsóknarfrestur 30. ágúst
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hallur Heiðarsson hheidarsson@ccep.com.
ATH. aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.