Starf í áfyllingu hjá Coca-Cola á Íslandi
LamarCoca-Cola á Íslandi auglýsir starf í áfyllingu. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins.
Mikilvægt er að geta hafið störf sem fyrst.
HELSTU VERKEFNI
- Áfylling og framsetning í verslunum
- Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
- Tryggja nægt vöruframboð í verslunum
ÁBYRGÐ, MENNTUN OG REYNSLA
- Gilt bílpróf
- Þjónustulund og fagleg framkoma
- Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
- Stundvísi og reglusemi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Drifkraftur og sveigjanleiki
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 9. ágúst 2026
Frekari upplýsingar veitir Einar Auðunn Unnarsson eunnarsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.