Vörhúsastjóri
LamarCoca-Cola á Íslandi leitar að vöruhúsastjóra. Við leitum að sjálfstæðum, metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til að leiða daglegan rekstur í vöruhúsi. Starfið felur í sér víðtæka ábyrgð á daglegri stjórn vöruhúss, þar með talið mönnun, skipulagningu á vöktum og ferlum sem styðja við þjónustu í vöruhúsi.
HELSTU VERKEFNI
• Skipulagning, mönnun og daglegur rekstur deildar
• Starfsmannahald
• Móttaka nýliða
• Fræðsla og þjálfun
• Rekstur tækja
• Umbætur og ferlar
• Virk þátttaka í stefnubreytingum til að bæta rekstur.
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
• Að minnsta kosti 5 ára af því að leiða teymi
• Lyftarapróf er æskilegt
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta
• Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg
• Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Umsóknarfrestur 21. september 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Hallgrímsdóttir framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs sigrun.hallgrimsdottir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.