Sérfræðingur í upplýsingatækni
SøkCoca-Cola á Íslandi leitar að drífandi, sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi til að stýra verkefnum og umbótum tengdum upplýsingatækni. Viðkomandi verður lykilaðili í innleiðingu, notkun og eftirfylgni tæknilausna hjá CCEP á íslandi. Ef þú hefur brennandi áhuga á tæknilausnum og gott auga fyrir þróun og umbótum gæti þetta verið tækifæri fyrir þig.
Starfið tilheyrir teymi BPT (Business Process & Technology) hjá CCEP og heyrir undir framkvæmdastjóra BPT í Noregi.
Helstu verkefni
• Verkefnastýra tæknitengdum verkefnum og styðja við stöðugar umbætur í upplýsingatækni CCEP á Íslandi
• Tryggja að tæknilausnir CCEP á íslandi séu samræmdar, skilvirkar fyrir Íslenska markaðinn og styðji við stefnu CCEP
• Veita ráðgjöf, leiðsögn og fræðslu um starfrænar lausnir, þjónustu og nýjungar
• Dagleg aðstoð við notendur og lausn tæknilegra áskorana
• Tryggja að íslenska starfsemin nýti til fulls þá stafrænu möguleika sem í boði eru (MSD365, RED1, OC Engine, MS Copilot, MS Office)
• Ofurnotandi af Dynamics 365 Finance and Operations
• Efla framúrskarandi vitund og hegðun í netöryggismálum.
Hæfniskröfur
• Háskólapróf í upplýsingatækni, tölvunarfræði eða sambærilegt
• Reynsla af verkefnastjórnun og eða breytingastjórnun
• Framúrskarandi tölvuþekking, þekking á ferlum og tæknilausnum og hæfni til að tileinka sér nýjungar
• Þekking eða reynsla af MSD365 og Salesforce mikill kostur
• Fagleg vinnubrögð og rík þjónustulund
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
• Góð töluð og rituð íslensku- og enskukunnátta
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 17.maí 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðssvið, hr@ccep.com, en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.