Skip to main content
Search jobs

Forstöðumaður sölu á matvörumarkaði

Søk Reykjavík, Island Field Sales 11/09/2025 104312

Coca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum, framsýnum og árangursdrifnum leiðtoga til þess að  leiða sölustarf á matvörumarkaði. Viðkomandi mun leiða öflugt söluteymi með skýra framtíðarsýn og hvetjandi forystu að leiðarljósi.
Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra sölusviðs og vinnur þétt með öðrum stjórnendum fyrirtækisins.

HELSTU VERKEFNI
•    Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini
•    Ábyrgð á rekstri og áætlunargerð
•    Greining gagna til ákvarðanatöku
•    Leita leiða til að vaxa á markaði
•    Mannaforráð og dagleg stjórnun
•    Tekur þátt í að móta og framfylgja stefnu fyrirtækisins
•    Faglegur leiðtogi og stuðningur við önnur hlutverk og deildir til árangurs á matvörumarkaði

ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
•    Háskólapróf í viðskiptafræði 
•    Þekking, reynsla, og brennandi áhugi á viðskiptastjórn/ og eða sölustjórn
•    Reynsla og hæfni í samningatækni og samningagerð
•    Greiningarhæfni og reynsla af söluáætlunum og áætlunargerð
•    Haldbær reynsla af sölu og þjónustustörfum
•    Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
•    Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg
•    Góð tæknikunnátta
•    Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur
•    Þekking og reynsla af þjónustustjórnun er kostur

 

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
 
Umsóknarfrestur 21.september 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnþór Jóhannsson framkvæmdastjóri sölusviðs arnthor.johannsson@ccep.com 
ATH. aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Søk