Skip to main content
Search jobs

Tímabundið starf í áfyllingu

Søk Reykjavík, Island Field Sales 25/01/2026 106850

Coca-Cola á Íslandi auglýsir tímabundið starf í áfyllingu. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Mikilvægt er að geta hafið störf sem fyrst og geta starfað út september 2026.

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Áfylling og framsetning í verslunum
•    Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
•    Tryggja nægt vöruframboð í verslunum

Menntunar- og hæfniskröfur
•    Gilt bílpróf
•    Þjónustulund og fagleg framkoma
•    Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
•    Stundvísi og reglusemi
•    Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
•    Drifkraftur og sveigjanleiki
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur 1. febrúar 2026

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.
Frekari upplýsingar veitir Stefán Ragnar Guðlaugsson sgudlaugsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Søk