Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í tæknideild hjá Coca-Cola á Íslandi

Candidatar-me Reiquiavique, Islândia Supply Chain 30/01/2026 104771

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Stjórnun og eftirlit framleiðsluvéla og áfylling í samræmi við áfylliplan
•    Uppsetning, viðhald og endurbætur á vélbúnaði
•    Bilanagreining og bilanaleit
•    Viðhald á húsnæði fyrirtækisins og minni háttar lagfærðingar
•    Þátttaka í reglubundnum þrifum á tækjum

Menntunar- og hæfniskröfur
•    1-2 ár iðnám í rafvirkjun eða vélvirkjun
•    Þekking og reynsla í iðntölvu- og skjámyndaforritun er kostur
•    Góð almenn þekking á tölvur og upplýsingatækni
•    Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
•    Enskukunnátta er nauðsynleg

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.
Umsóknarfrestur 1. mars 2026
Frekari upplýsingar veitir mannauðssvið hr@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Candidatar-me