Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í framleiðslu og áfyllingu hjá Víking Brugghús

Använd Akureyri, Island Lager och Produktion 02/02/2026 107357

Við hjá Víking brugghús erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Aldurstakmark er 18 ára og vinnutíminn er mismunandi eftir störfum. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Áfylling í samræmi við áætlanir
•    Stjórnun framleiðsluvéla og eftirlit með gæðum framleiðslunnar
•    Bilanagreining í samvinnu við viðgerðarmenn
•    Þátttaka í reglubundnu viðhaldi á tækjum og vélum
•    Almenn þrif
•    Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur
•    Reynsla af framleiðslustarfi eða verksmiðjuvélum er æskileg
•    Sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun
•    Almenn tölvukunnátta
•    Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
•    Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg

Unnið er á 10 klukkustunda vöktum mánudaga til fimmtudaga.

Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.

Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.

Umsóknarfrestur 1. mars 2026

Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veita mannauðsráðgjafar okkar í gegnum netfangið hr@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Använd