Birgðastjóri
AnvändCoca-Cola á Íslandi leitar að birgðastjóra á vörustjórnunasvið CCEP.
Við leitum að skipulögðum og ábyrgðarfullum einstaklingi í starf birgðastjóra á lager. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf með ábyrgð á birgðahaldi og þátttöku í daglegum rekstri vöruhúss. Birgðastjóri heyrir undir forstöðumann vöruhúss og dreifingu. Starfið myndi henta vel einstaklingi sem hefur nýlega lokið við háskólanám.
HELSTU VERKEFNI
- Umsjón með birgðum og lagerstöðu
- Eftirlit með helstu mælikvörðum og umbætur tengdar þeim
- Samskipti við áætlunarteymi og framleiðslu
- Heimköllun á gámum með innfluttum vörum og hráefnum
- Talningar og birgðaleiðréttingar
- Þátttaka í umbótaverkefnum þvert á vörustjórnunarsvið
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, verkfræði eða sambærilegu námi er kostur
- Góð tölvukunnátta, reynsla af birgðakerfum er mikill kostur
- Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Reynsla af starfi á lager er kostur
- Leiðtogahæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynleg
- Enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Umsóknarfrestur 22.júní 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Máni Bessason thbessason@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.