Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í áfyllingu hjá Coca-Cola á Íslandi

Bewerben Reykjavík, Island Vertrieb (innen und außen) 01/02/2026 107353

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Aldurstakmark er 18 ára og vinnutíminn er mismunandi eftir störfum. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Áfylling og framsetning í verslunum
•    Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
•    Tryggja nægt vöruframboð í verslunum

Menntunar- og hæfniskröfur
•    Gilt bílpróf
•    Þjónustulund og fagleg framkoma
•    Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
•    Stundvísi og reglusemi
•    Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
•    Drifkraftur og sveigjanleiki
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Góð íslenskukunnátta

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.

Umsóknarfrestur 1. mars 2026

Frekari upplýsingar veitir mannauðssvið hr@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Bewerben