Sérfræðingur í hagdeild
ApplyCoca-Cola á Íslandi leitar að sérfræðingi í tímabundið starf í hagdeild.
Starfið felur í sér greiningar, eftirlit með kostnaðarverði vara, uppbygging lykilmælikvarða og áætlanagerð.
HELSTU VERKEFNI
- Eftirlit með mælikvörðum, mælaborðum og frávikagreining á kostnaðarverði seldra vara
- Gagnaöflun og greiningar fyrir stjórnendur
- Stuðningur við vörustjórnunarsvið, viðhalda lykilmælikvörðum, eftirlit með kostnaðarverði vara, viðhalda mælaborðum, kostnaðareftirliti og greining á arðsemi fjárfestinga.
- Þátttaka í fjárhagsáætlunargerð og rekstrarspám.
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
- Háskólamenntun í viðskiptum, fjármálum, verkfræði eða sambærilegt eða a.m.k. 3 ára reynsla í sambærilegu starfi
- Haldbær reynsla af greiningarvinnu og skýrslugerð.
- Mjög góð þekking og reynsla af notkun á Excel og Power BI
- Þekking og reynsla af viðskiptagreind
- Góður skilningur á rekstri fyrirtækja – reynsla frá framleiðslufyrirtæki kostur
- Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur
- Góð hæfni til að tileinka sér nýja tækni og miðla áfram til annarra
- Enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Leiðtogahæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynleg
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Umsóknarfrestur 17.júní 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Margrét Sigurjónsdóttir ssigurjonsdottir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.