Sérfræðingur í hagdeild
ApplyCoca-Cola á Íslandi leitar að sérfræðingi á fjármálasviði. Við leitum að sjálfstæðum, metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til að leiða fjármálatengd verkefni með áherslu á framleiðslu og birgðahald og rekstrargreiningu. Starfið felur í sér víðtæka ábyrgð á þróun mælaborða og lykilmælikvarða, kostnaðargreiningu og stuðningi við stefnumótandi ákvarðanatöku. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
HELSTU VERKEFNI
- Leiða stefnumótun og uppsetningu á mælaborðum og lykilmælikvörðum.
- Þjálfa og styðja við starfsfólk í notkun fjármálakerfa og verkfæra sem notuð eru í skýrslugerð
- Áætlanagerð og áætlanakerfi – Ábyrgð á ferlum tengdum framleiðslu og birgðahaldi.
- Stjórnendaskýrslur – ábyrgð á að tryggja réttmæti gagna er tengjast fjármálum
- Taka þátt í fjárhagsáætlunargerð og kostnaðargreiningu.
- Mat á fjárfestingar verkefnum og stuðningur viðframleiðslusvið við mótun nýrra viðskiptahugmynda.
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
- Haldbær reynsla af greiningarvinnu og skýrslugerð.
- Þekking á Excel og Power BI
- Þekking og reynsla af viðskiptagreind
- Góður skilningur á rekstri fyrirtækja – reynsla frá framleiðslufyrirtæki kostur
- Reynsla úr alþjóðlegu umhverfi er kostur
- Góð hæfni til að tileinka sér nýja tækni og miðla áfram til annarra
- Enskukunnátta í ræðu og riti er nauðsynleg
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Háskólamenntun í viðskiptum, fjármálum, verkfræði eða sambærilegt og a.m.k. 3 ára reynsla í sambærilegu starfi
- Leiðtogahæfileikar, sjálfstæði og frumkvæði eru nauðsynleg
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Umsóknarfrestur 17.ágúst 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sandra Margrét Sigurjónsdóttir ssigurjonsdottir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.