Skip to main content
Search jobs

Viðhaldsstjóri hjá Víking brugghús

Aplicar Akureyri, Islandia Supply Chain 27/11/2026 114876

Víking Brugghús á Akureyri leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að hafa umsjón með og leiða viðhald á vélum og tæknibúnaði framleiðslunnar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem þú kemur að uppsetningu, viðhaldi og endurnýjun framleiðslubúnaðar sem gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi brugghússins.

 

 

HELSTU VERKEFNI
•    Ábyrgð á viðhaldi og daglegri framkvæmd viðhaldsáætlana
•    Skipulagning, samhæfing og innleiðing umbóta og á fyrirbyggjandi viðhaldi
•    Endurnýjun á framleiðslubúnaði
•    Samskipti við innlenda og erlenda birgja
•    Innkaup og birgðastýring varahluta
•    Eftirfylgni með verktökum og þjónustuaðilum
•    Viðhald fasteigna og lóðar fyrirtækisins

ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
•    Menntun á sviði rafvirkjunar, vélvirkjunar, vélstjórnar eða önnur tæknimenntun sem nýtist í starfi.
•    Reynsla af skipulögðu viðhaldi og viðhaldskerfum
•    Reynsla af framleiðsluumhverfi er kostur
•    Öryggis og gæðamiðað hugarfar
•    Þjónustulund og góð samskiptahæfni
•    Frumkvæði og skipulagshæfni
•    Metnaður og lausnamiðuð hugsun

Víking Brugghús á Akureyri er mikilvægur hluti af Coca-Cola á Íslandi þar sem við bruggum og framleiðum okkar gæðabjór. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.

Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.

Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.


Umsóknarfrestur 6. desember 2026


Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurpáll Torfason storfason@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.

Aplicar