Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
AplicarViltu gegna lykilhlutverki í að tryggja að réttar vörur séu á réttum stað á réttum tíma? Coca-Cola á Íslandi leitar að metnaðarfullum og greinandi sérfræðingi í áætlanagerð til að styrkja vörustjórnunarsvið fyrirtækisins. Starfið tengir saman sölu, markaðsmál, innkaup, framleiðslu, birgðastýringu og dreifingu og hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af gögnum, samvinnu og stöðugum umbótum.
HELSTU VERKEFNI
• Umsjón með og þróun eftirspurnar- og framboðsáætlana.
• Gerð framleiðslu- og innkaupaáætlana
• Stýring birgðastigs með áherslu á hátt þjónustustig og hagkvæma nýtingu fjármagns.
• Greining á frávikum, áhættu og tækifærum ásamt tillögum að aðgerðum.
• Eftirfylgni með lykilmælikvörðum og þátttaka í ferla- og umbótavinnu.
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis í viðskiptafræði, verkfræði, rekstrarfræði eða tengdum greinum.
• Reynsla af áætlanagerð, aðfangastjórnun eða sambærilegum verkefnum er æskileg.
• Góð greiningarhæfni og mjög góð færni í Excel og gagnavinnslu.
• Reynsla af ERP-kerfum; þekking á D365 og Power BI er kostur.
• Sterk samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og starfssvið.
• Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.
• Frumkvæði, sveigjanleiki og áhugi á stöðugum umbótum.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Umsóknarfrestur 11. október 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Áslaug Harpa Axelsdóttir aaxelsdottir@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.