Vélvirki
AplicarCoca- Cola á Íslandi leitar að vélvirkja í framtíðarstarf í tæknideild. Starfið felur í sér viðhald og endurbætur á vélbúnaði og húsnæði. Deildin gegnir stóru hlutverki í öryggi og gæðum á framleiðslu fyrirtækisins.
HELSTU VERKEFNI
• Viðhald, breytingar og uppsetning á framleiðslu og vélbúnaði
• Eftirlit með vélbúnaði
Viðhald og breytingar á húsi og lóð
• Stuðningur við framleiðsludeild í vélarsal
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
• Tæknimenntun á sviði vélstjórnar, vélvirkjunar eða iðnfræði sem nýtist í starfi
• Reynsla á sviði viðhalds véla og tækja
• Reynsla af öryggismálum í framleiðslu
• Enskukunátta nauðsynleg
• Góð almenn þekking á tölvur og upplýsingatækni
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.
Umsóknarfrestur 10.ágúst
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Kröyer Halldórsson jhalldorsson@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsíknarvef.