Skip to main content
Search jobs

Hlutastarf í áfyllingu hjá Coca-Cola á Íslandi

Aplicar Reikiavik, Islandia Comercial: ventas fuera de la oficina 29/05/2026 110312

Coca-Cola á Íslandi auglýsir eftir helgarstarfsmanni til að sinna áfyllingu á vörum fyrirtækisins í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem um áfyllingu er að ræða fylgir starfsinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

 

 

HELSTU VERKEFNI OG ÁBYRGÐ

•    Áfylling og framsetning í verslunum
•    Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
•    Tryggja nægt vöruframboð í verslunum

HÆFNISKRÖFUR

•    Gilt bílpróf
•    Þjónustulund og fagleg framkoma
•    Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
•    Stundvísi og reglusemi
•    Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
•    Drifkraftur og sveigjanleiki
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Góð íslenskukunnátta

Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.


Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.


Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.


Umsóknarfrestur 7. júní 2026
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veitir Einar Auðunn Unnarsson gegnum netfangið eunnarsson@ccep.com  en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Aplicar