Sérfræðingur í áætlanagerð
SolliciteerCoca-Cola á Íslandi leita að metnaðarfullum sérfræðingi í áætlanagerð. Viðkomandi er hluti af innkaupa- og áætlanateymi á vörustjórnunarsviði og tekur þátt í ýmiss konar teymisvinnu með frábæru samstarfsfólki hérlendis og erlendis. Viðkomandi gegnir veigamiklu hlutverki í vörustjórnun með því að skipuleggja framleiðslu og innkaup. Nákvæmni, talnalæsi, geta til að vinna með gögn, sjálfstæð vinnubrögð og greinandi hugsun eru mikilvægir þættir til að ná árangi í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð í starfi
- Umsjón með gerð framleiðsluáætlunar
- Umsjón með innkaupaáætlun fyrir framleiðsluvörur og fullunnar vörur sem seldar eru hjá fyrirtækinu
- Samskipti við birgja og flutningsaðila
- Þáttakandi í fundum hérlendis og með samstarfsaðilum erlendis
- Fylgjast með lykilmælikvörðum og skýrslum
- Þátttakandi í ferla- og umbótavinnu á sviði innkaupa-og áætlanagerðar
Menntun / reynsla
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði eða annað sambærilegt
- Góð færni í Excel og öðrum office forritum
- Góð íslensku-og enskukunnátta í ræðu og riti
- Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í hópi
- Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð
- Reynsla af áætlanagerð kostur
- Þekking á ERP kerfi kostur
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Umsóknarfrestur 2. nóvember 2025
Nánari upplýsingar um starfið veitir Áslaug Harpa Axelsdóttir axelsdottir@ccep.com.
ATH. aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.