Starf á lyftara í vöruhúsi Coca-Cola á Íslandi
SøkCoca-Cola á Íslandi leitar að drífandi einstaklingi í starf á lyftara í vöruhúsi til að slást í okkar frábæra hóp.
HELSTU VERKEFNI
- Unnið að mestu á lyftara
- Tiltekt og frágangur í vöruhúsi
- Frágangur á vörum eftir áætlunum, reglum og ferlum
- Færa til vörur fyrirtækisins í vörugeymslur milli staðsetninga í húsinu
- Móttaka gáma
- Önnur tilfallandi verkefni
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
- Lyftarapróf og starfsreynsla við vinnu á lyftara
- Sjálfstæð vinnubrögð, sterk öryggisvitund og greinandi hugsun
- Grunnþekking á tölvum
- Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
- Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð og aldri.
Umsóknarfrestur 15. nóvember 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Styrmir Fjeldsted sfjeldsted@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.