Meiraprófsbílstjóri í dreifingu hjá Coca-Cola á Íslandi
Candidatar-meCoca-Cola á Íslandi leitar að drífandi einstaklingi í starf bílstjóra með meirapróf til að slást í okkar frábæra hóp.
HELSTU VERKEFNI
• Dreifa vörum fyrirtækisins til viðskiptavina
• Afhenda vörur eftir áætlunum
• Burður á vörum fyrirtækisins
• Tryggja að bíllinn sé hlaðinn skv. kröfum um gæði og öryggi
• Tryggja að vörur séu afhentar skv. kröfum um gæði og öryggi
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
• Meirapróf C er skilyrði (CE er kostur)
• Reynsla af útkeyrslu
• Sjálfstæð vinnubrögð, sterk öryggisvitund og greinandi hugsun
• Grunnþekking á tölvum
• Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð og aldri.
Umsóknarfrestur 8. mars 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bartosz Knasiak bknasiak@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.