Starf í vöruhúsi
Candidatar-meCoca-Cola á Íslandi leitar að öflugu, jákvæðu og áreiðanlegu fólki til að slást í okkar frábæra hóp. Við bjóðum spennandi og fjölbreytt starf í líflegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á metnað, samvinnu og góða vinnustaðarmenningu.
HELSTU VERKEFNI
• Tiltekt pantana og pökkun
• Talning og eftirfylgni með birgðum
• Burður og meðhöndlun framleiðsluvöru
• Aðstoð við bílstjóra í útkeyrslu
• Önnur almenn vöruhúsastörf eftir þörfum.
ÁBYRGÐ MENNTUN OG REYNSLA
• Sjálfstæð og ábyrg vinnubrögð
• Grunnþekking á tölvum
• Jákvæðni, þjónustulund og geta til að vinna undir álagi
• Góð samskiptahæfni
• Stundvísi, áreiðanleiki og heiðarleiki
• Lyftarapróf kostur
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð og aldri.
Umsóknarfrestur 22. febrúar 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Styrmir fjeldsted sfjeldsted@ccep.com en aðeins er tekið við umsóknum í gegnum umsóknarvef.