Sumarstarf í rannsókn hjá Víking brugghús
AnvändVið hjá Víking brugghús erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Aldurstakmark er 18 ára og vinnutíminn er mismunandi eftir störfum. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Gæðaeftirlit á framleiðslu drykkja, prófanir og kvarðanir
• Eftirlit og skráningar
• Mælingar sem tengjast vatnsgæðum
• Móttökueftirlit á hráefnum
• Framleiðslueftirlit á drykkjum
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• A.m.k. 1 ára háskólamenntun
• Gæðaeftirlit og reynsla af störfum á rannsóknarstofu
• Almenn tölvukunnátta
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
• Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg
Hafir þú áhuga á að starfa með okkur í sumar þá endilega sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast, því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.
Ráðningarferlið getur tekið mislangan tíma. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.
Umsóknarfrestur 1. mars 2026
Ert þú ekki viss um að þú uppfyllir hæfniskröfur en hefur brennandi áhuga? Hafðu samband við okkur ef þú ert efins. Nánari upplýsingar veitir Eggert Sigmundsson esigmundsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.