Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í dreifingu hjá Coca-Cola á Íslandi

Använd Reykjavik, Island Lager och Produktion 02/02/2026 107355

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Dreifa vörum til viðskiptavina
•    Afhenda vörur eftir áætlunum
•    Burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins til viðskiptavina þegar þess er þörf
•    Tryggir að bíllinn sé hlaðinn skv. kröfum um gæði og öryggi
•    Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
•    Meirapróf C er nauðsynlegt
•    Reynsla af útkeyrslu
•    Sjálfstæð vinnubrögð, sterk öryggisvitund og greinandi hugsun
•    Almenn tölvukunnátta
•    Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki
•    Íslensku- eða enskukunnátta er nauðsynleg

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.
Umsóknarfrestur 1. mars 2026
Frekari upplýsingar veitir mannauðssvið hr@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Använd