Skip to main content
Search jobs

Sumarstarf í vöruhúsi hjá Coca-Cola á Íslandi

Solliciteer Reykjavik, IJsland Supply Chain 01/02/2026 107354

Við hjá Coca-Cola á Íslandi erum að leita að öflugu og metnaðarfullu fólki til að slást í okkar frábæra hóp í sumar. Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá lok maí til lok ágúst.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
•    Tiltekt og pökkun pantana
•    Gæðaeftirlit og talningar
•    Afhending á vörum til viðskiptavina á staðnum
•    Almenn vöruhúsastörf
•    Mögulega aðstoða í dreifingu ef þess er þörf
•    Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
•    Lyftarapróf er æskilegt
•    Reynsla af störfum í vöruhúsi er kostur
•    Almenn tölvukunnátta
•    Jákvæðni og geta til að vinna undir álagi
•    Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
•    Góð færni í mannlegum samskiptum
•    Stundvísi, heiðarleiki og áreiðanleiki

Unnið er á vöktum á virkum dögum.
Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.
Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð eða aldri.
Umsóknarfrestur 1. mars 2026
Frekari upplýsingar veitir Styrmir Fjeldsted sfjeldsted@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Solliciteer